Kort
Tvenns konar gagnvirk kort hafa verið unnin upp úr gögnum sem safnað var í netkönnun SVIÐ-verkefnisins árið 2023. Markmiðið með kortunum er að miðla niðurstöðum verkefnisins á aðgengilegan og skemmtilegan hátt.
Í fyrsta lagi eru svonefnd útbreiðslukort sem sýna dreifingu þekktustu minnihlutaafbrigðanna í íslenskum framburði. Þau eru unnin upp úr niðurstöðum framburðarprófa þar sem þátttakendur skiluðu inn upptöku af lestri sínum á stuttum textum.
Í öðru lagi eru svonefnd skynjunarkort sem sýna hversu vel fólk þekkir helstu minnihlutaafbrigðin í íslenskum framburði. Þau eru unnin upp úr niðurstöðum hlustunarverkefna þar sem þátttakendur hlustuðu á upptökur af framburði annars staðar að af landinu. Eftir hlustunina voru þátttakendur spurðir hvaðan þeir héldu að lesarinn væri.
Kortagerð: Ása Bergný Tómasdóttir